Flýtilyklar
Fréttir
Samvirkni ehf. Framúrskarandi fyrirtæki 2020 - Fjórða árið í röð
14.10.2020
Við erum stolt af því að vera á meðal þeirra 2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum 2020. Það er okkur mikils virði að vera meðal þeirra fyrirtækja sem efla íslenskt efnahagslíf en heilbrigður rekstur hefur sjaldan skipt samfélagið jafn miklu og nú á þessum tímum. Þessi viðurkenning fellur vel af okkar markmiðum sem er að vera í fararbroddi með nýjar og samhæfðar lausnir fyrir allar gerðir fyrirtækja sem miða að aukinni hagræðingu, einfaldari rekstri og virðisauka fyrir alla aðila.