Fréttir

Samvirkni ehf. Framúrskarandi fyrirtæki 2024 - Áttunda árið í röð

Framúrskarandi fyrirtæki er vottun fyrir íslensk fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um heilbrigðan rekstur og sterkar stoðir. Viðurkenningin er vottun fyrir vönduð vinnubrögð og gefur vísbendingar um að fyrirtæki sem hljóta hana séu líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur.

Það er okkur mikils virði að vera meðal fyrirtækja sem efla íslenskt atvinnulíf. Þessi viðurkenning fellur vel að okkar markmiðum um að vera í fararbroddi með nýjar og samhæfðar lausnir fyrir allar gerðir fyrirtækja. Lausnir sem miða að aukinni hagræðingu, einfaldari rekstri og auknum virðisauka atvinnulífsins.


Svæði

Samvirkni Ehf.

Hafnarstræti 97 / 600 Akureyri
Sími 460 5200 / Símbréf 460 5201
Samvirkni@samvirkni.is

Skráning á póstlista